fimmtudagur, júní 15, 2006

Afsakið hlé.

Síðastliðnar 2 vikur hef ég semsagt verið á Íslandi. Bróðir minn varð stúdent, og ég verð nú að viðurkenna að það komu nokkur stolt tár í augun þegar hann setti húfuna upp!!

Ég vann allan tíman og það var rosalega gott, held barasta að ég hafi náð að vera ansi effektív.

Við Berglind vorum duglegar að fara útá lífið okkur tókst að fá menningarsjokk á Pravda, flippa á Rex, hrista okkur á hressó, sitja á vegamótum, troðast undir á Óliver, ég held mér hafi tekist að rekast á flesta sem ég þekki.

Nú er ég aftur komin til Danaveldis þar sem ekki þykir sjálfsagt að maður fái bjórgusur yfir sig, sígarettubruna í andlitið, bláar og marðar tær, og olbogaskot í mjöðmina ef mann langar að djamma. Ég er líka aftur komin í mitt vanalega vinnuumhverfi þar sem papercut er ekki daglegt vinnuslys. En þrátt fyrir það er ég strax byrjuð að sakna Íslands og allra sem þar eru.

Í gær áttum við Gummi 5 ára dag, Gummi gaf mér silfurhring sem mér hefur lengi langað í!! Við tókum okkur frí allan dagin og röltum í góða veðrinu, settumst á útikaffihús og fengum okkur hvítvín og salat og ís í Nyhavn, svo kíktum vð líka smá í búðir :) Svo um kvöldið var Gummi búinn að panta borð í 700 ára gömlu klaustri þar sem við fengum æðislega 5 rétta máltíð, það var ævintýri líkast... þessum degi verður seint gleymt!!

Um helgina koma Sara Jóna og Hjalti í heimsókn, við ætlum að grilla niðrá strönd á 17. júní og það verður öruglega eithvað meira fjör á okkur.

Svo er ég í prófi 22. júní... gangi mér vel að lesa

Nú ætla ég ekki að pína ykkur meira í bili.... LATER!!

   |