miðvikudagur, maí 10, 2006

Ferskt kartöflusalat og BBQ Kjúlli, er alveg málið í sumarveðrinu núna, Gummi er að koma heim og ég ætla að vera búin að elda þegar hann kemur, segið svo að ég sé ekki góð húsmóðir...

Gummi kom mér í mjög gott skap áðan með því að senda mér þennan link. Þetta er myndband af manni sem fer í gegnum þróun danssporanna, það verður bara að segjast að maðurinn er algjör snillingur. Ég veit ekki hvers vegna, en þetta myndband fékk mig til að hugsa til Svövu.... er ég ein um það?

Annars er bara fjör... sumar sól og óhóflega miklum tíma eytt í vinnuna, enda er hún aðeins meira spennandi en skólabækurnar....

Later

   |