Langt síðan síðast....
Ég er búin að vinna rosa mikið undanfarna daga, það voru frömd skemdarverk á búðarfrontinum, einhver rosa klár hélt hann kæmist inn við að rífa upp lista sem er í rauninni þarna bara uppá puntið.... fífl!!
Það er alltaf nóg að gera, og núna í sumrinu er erfit að koma sér að lesa bækurnar. Ég fór aðeins á ströndina í dag og las smá, en hugurinn reikar alltaf frá bókunum og til alls fjörsins sem verður í sumar.
Stóru fréttirnar eru að ég er búin að fá inn í skóla í Rennes í Fraklandi, þar sem mér bíðst að verða skiptinemi næstu skólaönn. Ég er rosa spennt, en ég verð að skoða allar hliðar málsins áður en ég stekk á þetta, svo ég updeita þegar ég verð búin að taka ákvörðun, ég mundi fara af stað 25. ágúst svo dagskráin þéttist enn meira.
Ég var að reikna út að ég á eftir að fara í flug hátt uppí 10 skipti á þremur mánuðum... en það verður sko þess virði.
Á morgun ætla ég að gera aðra tilraun til að leggja til atlögu við lestur, þið finnið mig á ströndinni að reyna að tróða fróðleiknum langt ofaní kok.
Kveðjur úr SumarHöbninni...
PS. Gummi hefur blásið nýju lífi í bloggið sitt.... já, belív it or not, Gummi er farinn að blogga!!

<< Home