Á MORGUN!!! - Ég hlakka rosalega til.
Ég fór niðrí skóla í morgun, bókasafnið opnaði kl. 10 og þegar ég kom var svo mikið af fólki þar fyrir utan, þetta var eins og það væru rokktónleikar! þegar hurðin á bókasafnið oppnaðist réðst fólk inn og hljóp á lesbásana!! Það var einginn smá æsingur í að eyða Kristhimmelfartsdag yfir bókunum. Ég var reyndar ekkert skárri því eftir að ég kláraði verkefnið um 12 leitið fór ég niðrí vinnu að ganga frá málum, og á meðan opnaði ég búðina... svo mér tókst heldur betur að syndga á helgidegi.
Gummi sá sér ekki fært að koma heim frá Svíþjóð fyrr en á laugardaginn, ég er náttúrulega grautfúl... en lifi það nú öruglega af.
Í kvöld ætla ég að vera heima að pakka og taka til. Á morgun ætla ég svo bara að dúlla mér í búðum og fara í klippingu. Svo annað kvöld verð ég bara á íslandi!! Ég hlakka til að hitta alla og það verður æðislegt að sjá litla bró útskrifast, maður er eitt stykki stolt systir!!

<< Home