fimmtudagur, maí 04, 2006

Það fer ekkert á milli mála að sumarið sé komið!! Það sést ekki ský á himni, hitinn í skugga í bakgarðinum eru 18,9 gráður. Hjólafólki hefur fjölgað ógurlega á hjólabrautunum, enda ekki hægt annað en að hjóla!! Allir eru í góðu skapi, nema bankastarfsmaðurinn sem afgreiddi mig í dag, og Johanna mætir í vinnuna í dag í brjáluðu sumarskapi með ís handa samstarfsmönnum sínum, það gerist varla betra :)

Í tilefni sumarsins ætla ég hér að fara yfir sumar-dagskrána, svona fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvar þeir geta fundið mig sumar:

05.-16. maí, Próflestur
17. maí, Próf
18.-26. maí, Verkefnavinna
26. maí-13. júní, Ísland
14. júní-21. júní, Danmörk, próflestur
22. júní, Próf
29. júní, Gummi útskrifast :)
30. júní-3. júlí Roskilde
5.-21. júlí Florida
ca. 25. júlí-27. ágúst, Ísland

Svo kemur Sara Jóna í heimsókn í júní og Steinunn og Daníel koma í útskriftina hans Gumma og Berglind kemur vonandi á Roskilde. Svo það verður sko meira en nóg um að vera.
Okkur Gumma langar rosa mikið til Eyja um Verslunarmannahelgina, hvað segir fólk um það?

Þessa dagana vaknar Gummi um klukkan hálf sjö á morgnanna og lærir fram til miðnættis, ég stunda búðina af kappi ásamt því að reyna að einbeita mér að bókunum. En við njótum hvers augnabliks, þetta er ljúft líf :)

Kveð í bili.... Pís át

   |