fimmtudagur, maí 18, 2006

Það er þungu fargi af mér létt. Stóra prófið búið og einkunnin var ekki af verri endanum. Ég hef að minnsta kosti hækkað meðaleinkunina mína frá því í fyrra um einn heilan. Ég er mjög stolt af því þar sem ég er búin að nota mjög mikið af verðmætum lestrartíma í að vinna.

Gummi er enn óver and át, í verkefnavinnu. Svo ég sé hann sjaldan. Búin að borða kvöldmat ein oftar en góðu hófi gegnir. Ég er samt rosalega stolt af Gumma, hann gefur sig allan í þetta verkefni og hann getur sko aldeilis verið ánægður með sig.

Ég held Eurovisionpartý heima hjá mér á Laugardaginn, vinir mínir úr skólanum koma, kannski koma Inga Rós og Gulli og svo kemur vonandi leynigestur sem ég má því miður ekki nefna á nafni... allavega ekki fyrr en seinna. Kannski Gummi komi líka... og Elva.... maður veit aldrei hvað þeim dettur í hug :)

Ég er búin að vera að vinna í dag, og mér fannst alveg æðislegt að geta unnið án þess að vera með samviskubit yfir að vera ekki heima að læra, svo ég notaði tækifærið og var í vinnunni í 10 klukkustundir. Núna á ég bara eftir að leysa eitt skólaverkefni áður en ég kem svo til íslands á föstudagin kemur.... það verður æði!!

   |