sunnudagur, maí 21, 2006

Partýið í gær var mjög vel heppnað, það var svo gaman hjá okkur að við steingleymdum að kveikja á sjónvarpinu, en Gummi mynnti okkur á það svo við rétt náðum að sjá Danmörku twista!!
Gummi var ekki í partýinu, hann var nefninlega í lokasprettinum á verkefninu sínu, núna er hann á leiðinni til Svíþjóðar að spila golf með Jonna og Ásgeir, algjörlega áhyggjulaus og glaður.

Við borðuðum heimatilbúin mexíkanskan mat. Og svo fluttum við okkur yfir í betri stofuna og hygguðum okkur langt fram á nótt. Ég endaði á Skarfinum með færeyingunum, það var alveg upplifun útaffyrir sig. Færeyingurinn er nefninlega alveg bráðskemmtilegt fyrirbæri :)


Leynigestir kvöldsins voru Mæja og Sólveig. Ég mátti ekki segja frá að hún væri að koma því hún kom mömmu sinni og systkynum á óvart með að koma og hitta þau í Kaupmannahöfn.


   |