Jebb, próf á morgun. Brjáluð stemmning.... sit mygluð uppí sófa og er að reyna að leggja á mynnið nöfn á köllum sem fundu upp hinar ýmsu stjórnunar teoríur. En eins og þeir sem þekkja mig vita þá er ég ómöguleg með nöfn, svo ég vona bara að þar sem þetta er gruppe-eksamen þá muni hinir meðlimir hópsins koma til hjálpar þegar kemur að því að segja hver á teoríuna, ég get þó allavega sagt að ég er með pensúmið á hreinu, svo ég er ekkert með neina ofboðslegar áhyggjur... ég meina, hversu ílla getur þetta farið, við erum búin að skrifa gott verkefni sem undirbyggir einkunnina okkar, svo ég held ég taki þessu nú bara með ró.
Ég hef ákveðið að sækja um skólann í Fraklandi, jább, það eru 95% líkur á að ég fari. Það væri ekki nema eithvað óvænt komi uppá að ég hætti við.
Eftir prófið á morgun ætla ég að fara heim og þrífa og gera fínt fyrir Eurovision hygge á fimmtudaginn. Ég verð að vinna á fimmtudaginn þar sem sumarfríin eru byrjuð, en svo á föstudaginn byrja ég að vinna verkefni sem ég þarf að klára áður en ég fer til Íslands 26. maí.
Gummi er að fara í golfferð til Svíþjóðar á sunnudaginn, svo það er meira en nóg að gera hjá honum, han þarf nefninlega ekki bara að klára ritgerðina sína heldur líka að skrifa Synopsis til lögfræðprófið.
Úff púff... það er varla tími fyrir okkur að hittast, því þegar Gummi kemur úr golfferðinni er ég á leið til Íslands... en við gerum okkar besta til að kúra á kvöldin hálf sofandi, þegar við erum bæði alveg búin á því, jááá, hvert tímabil hefur sinn sjarma ;)

<< Home