Nú fer að styttast í það, tveir dagar í Ísland!!
Ég er fyrst núna að fatta það, svo ég hlakka rosalega til. Ég er bara á fullu í að ganga frá og klára hluti svo ég geti verið róleg á íslandi, það er ekki auðvelt að yfirgefa "mæ beibís" í rúmar tvær vikur... þá er ég auðvitað að tala um Búðina og Gumma.
Gummi er að spila golf í Svíþjóð, vonanvi að hann komi heim á morgun, en við sjáum til.
Helgi og Heiða eignuðust dóttur 21. maj þau hafa nefnt hana Birtu, hún er algjört æði... til hamingju með dótturina!!
Hlakka til að hitta alla næstu helgi!!

<< Home