mánudagur, maí 22, 2006

Nú er aftur komin ró á þennan bæ, Mæja fór til Englands í morgun svo núna sit ég inni í sófa og er að vinna verkefnið, það eru þrumur og eldingar úti, enda kom allt í einu rosa hiti yfir landið, held það séu um 20 stig!! Mér finnst ofboðslega kósí að sitja inni í svona veðri. Nú er bara að keyra á þetta, verkefnið þarf helst að klárast á 2 til 3 dögum... sjáum hvernig það fer :) En sama hvað, þá er ég að koma til íslands á föstudaginn kemur!!! Vá hvað það verður æðislegt að hitta alla!!

Þar sem ég er búin að bæta orðaforðan minn á færeysku til muna ætla ég að deila því aðeins með ykkur:

Mállæra:
Tad er uppá tídina, at tú lærur føroyskt, tað kundi verið eitt frálíkt hugskot!
Daman og sjeikurin sita og flenna at føroyska málinum...hetta er eitt sera stuttligt mál.
Skilji tit hetta?

Tungumálakennsla:
Það er kominn tími til að þú lærir færeysku, það gæti verið góð hugmynd! Stelpan og kærastinn sitja og hlæja að færeyska tungumálinu... þetta er ofboðslega fyndið tungumál.
Skiljið þið þetta?

Svo eru hérna tvö orð sem við erum búin að hlæja mikið af:
Yfirgangskroppur med bumbu er hriðjuverkamaður með sprengju.
Kvennafolkarefur er kvennabósi

   |