Ég upplifði soldið spes á fimmtudaginn var, metróinn keyrði ekki svo ég varð að taka svona metróbus. En viti menn, bílstjórinn hafði ekki hugmynd hvert hann átti að fara, hann var bara með lista yfir göturnar sem hann átti að keyra og svo voru farþegarnir farnir að hjálpa honum.... algjört klúður, og svo hélt gaurinn bara áfram með að afsaka sig og sagðist vera frá Roskilde.... hvernig afsökun er það, ég meina hvað þarftu að vita lítið til að vera á Kongens Nytorv og vita ekki hvar Gothersgade er!! og svo voru farþegarnir að spurja í hvora áttina hann var að keyra og hann hafði ekki hugmynd um hvaða stoppustöðvar voru framundan, svo þetta var svona hópvinna farþeganna að hjálpa gaurnum... mjög spes!!
Við erum búin að skila verkefninu hinu mikla og erum bara ánægð með útkomuna. Á mánudaginn fæ ég svo nýtt verkefni. En þessi helgi er fyrsta helgin í mjög langan tíma sem ég hef ekki neitt verkefni til að vera með samviskubit yfir að vera ekki að vinna í. Svo á föstudagsmorguninn gerði ég vorhreingerningu og fór svo út að skokka og fór svo niðrí bæ að njóta góða veðursins. Seinnipart dags helltist svo yfir mig hálsbólga, hiti og ömurlegheit. Í dag vaknaði ég svo, að ég hélt, hitalaus, og fór út að ralla, en varð að snúa við í hitakófi og ligg núna fyrir.... ömurlegt, öll fríhelgin mín farin í vaskinn!! GARG!! En ef maður verður að spila Pollíönnuleikinn þá get ég verið ánægð að þetta kom ekki ofaní verkefnavinnuna.
Ég sáþá Hrafn Þorra og Kristinn í Kastljósinu um dagin, ekkert smá stolt af bræðrunum :)
En nú ætla ég að fara og láta mér batna, nenni þessu ekki meir....
Knús.... IngiPingi

<< Home