þriðjudagur, apríl 11, 2006

Í gær fann Gummi fyrsta gráa hárið mitt!! Hvað ætli það sé sem er að gera mig gráhærða... það er allavega ekki Gummi... kannski eru þetta bara gráu genin frá pabba, hann varð mjög ungur gráhærður... hver veit kannski verð ég með alveg hvítan koll á 25 ára afmælinu mínu, mér finnst það reyndar soldið kúl... eða ætti ég kannski að vera hrædd?

Um helgina hélt ég starfsmannapartý, það var rosa vel heppnað, allir í banastuði!! Þetta hristu svo sannarlega uppí þessum góða hóp sem við erum búin að setja saman.

Í dag er ég búin að sitja og skrifa inn viðtal sem ég tók í gær, þetta er óeðlilega tímafrekt!! en ég er búin núna. Við tókum þetta viðtal ásamt fleirum, í gær, til að safna inn upplýsingum um Organitations Analysen sem við erum að gera um CaféTeatret, leikhús niðri í bæ. Þetta er mjög spennandi, allt annar heimur en viðskiptabanki eða búð. Þar sem þarna er ekkert hugsað um peninga, aldrei, það er mjög spes að fatta það að það er heill heimur, heill bransi sem hugsar alls ekki um peninga. Þá spyr maður sig; "hvað er það sem drýfur starfsfólkið áfram?" Og það er það sem verkefnið okkar gengur útá.

Svo í morgun sat ég í rólegheitum að skrifa viðtalið inn þegar dyrabjallan hringir, ég opna og það er bara sveiflað svona lögregluskilti framaní mig... svona eins og í bíómyndunum. Þá var þetta bara einhver gaur að rannsaka brunan í kjallaranum.... ég sá varð fyrir vonbrygðum, hélt það ætti að fara að rannsaka eithvað spennandi.... en nei, ég hleypti þeim niðrí kjallara til að skoða svæðið og reddaði þeim svo bara símanúmerum hjá "bestyrelsen"

Í gær fórum við Gummi í Tívolí. Þetta var svona fjölskyldudagur starfsmanna, þar sem var frítt í tækin og frítt inn. Helgi er semsagt að vinna þarna inni og bauð okkur þar sem við erum það næsta við fjölskyldu hérna í Kaupmannahöfn. Það kveiknaði víst í einum af matsölustöðunum þarna, og á sama tíma bræddi litla lestin sem keyrir um garðinn úr sér, þetta gerðist allt á sama stað á sama tíma, og við Gummi stóðum akkurat hjá þegar babúbíllinn keyrði að og það rauk úr lestinni, og læti, en þetta var nú ekkert alvarlegt sem betur fer, eiginlega soldið fyndið hvað það kviknar í allstaðar sem við Gummi erum...
Það var rosa fínt að fara í tívolí, maður fær alltaf smá sumarstemningu í magan þegar maður kemur fyrst í tívolí, en sú tilfinning var fljótt drepin þegar við byrjuðum að skjálfa úr kulda.

Á morgun fer ég svo til Prag, hlakka alveg geðveikt til. Svo þið heyrið ekki í mér meira þangað til í fyrsta lagi á miðvikudaginn eftir viku.

Gleðilega páskahátíð!!

   |