Þá er ég komin heim frá Prag, það var rosa gaman að hitta Berglind, og fíflast soldið!!
Pabbi er búinn að vera hérna í heimsókn í svona tæpa viku í vinnuferð, og fór heim í dag. Við erum búin að gera fullt af stússi, svo það er ágætt.
Vorið er að skella á, fór út á peysunni í dag... svo það lofar góðu :)
Ég er að fara að skila stóru verkefni á föstudaginn svo við erum alveg 100% í því núna, en það gengur rosalega vel, erum að fara að lesa yfir og skrifa það seinasta á morgun, svo ég sé ekki framá stress og svefnleysi. Helgin á svo að fara í að taka til og þrífa (ekki veitir af), og vinna og koma hlutum í stand.
Það er víst kominn titringur í fólk, allir að fara á Roskilde festival, við ætlum að kaupa miðana okkar fljótlega... ég held hreinlega að allir ætli að fara þetta árið!!
knús
Ingibjörg

<< Home