fimmtudagur, apríl 06, 2006

Það er sossum nóg um að vera, meira en nóg af skólabókum sem liggja og bíða eftir að ég lesi þær, en við Gummi gáfum okkur samt tíma til að fara í bíó í gær, við Gummi fórum á Inside man, sem er ekki frásögufærandi nema að í miðri sýningu labba tvær löggur inn með vasaljós og skoðuðu hverjir voru í salnum, ég býst nú ekki við að það hafi setið morðingi í salnum þar sem þeir fóru fljótlega aftur... kannski var þetta svona aukafítus til að gera myndina meira spennandi... maður spyr sig...

Ég er í gangi með að undirbúa Firma fest með Salsa þema á laugardaginn.

Á miðvikudaginn fer ég svo til Prag, það verður alveg geðveikt, skil Gumma eftir einan um páskana, mér skilst að Helgi Páll ætli að passa hann fyrir mig.

Svo er maður að skoða atburði sumarsins, við erum næstum ákveðin í að fara á Roskilde festival, það er líka allir að fara!!

Svo verða Zulu rocks 17. júní, 12 tíma tónleikaveisla þar sem The Black Eyed Peas, Pet Shop
Boys, Pharrell, Mew, Kashmir, Carpark North, Bikstok Røgsystem og Pato spila

Svo er pæling hvort maður ætlar til Eyja um verslunarmannahelgina... það fer kannski soldið eftir hverjir eru að fara...

Svo er Madona að spila í Horsens 24. ágúst... pæling hvort maður fari á það.

Nóg um að vera.... manni leiðist allavega ekki á meðan, nú er ég bara að bíða eftir sumarveðrinu, kominn tími til!!

   |