fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Það er orðið langt síðan ég hef skrifað. Tölvan mín krassaði svo nú er ég búin að kaupa nýja tölvu. Alveg geðveika létta og flotta... algjör skvísu tölva!!

Ég er komin aftur til Danaveldis eftir æðislegan tíma á Íslandi. Ég náði reyndar ekki alveg að hitta alla og gera allt sem ég vildi, en það verður bara að vera næst.
Núna eru pabbi og Hans í heimsókn, þeir eru að fara á sýningu í Bella Center og ég er að vinna á fullu, enda er stutt í að ég fer til Frakkalandsins.
Ég fer 31. ágúst og kem aftur rétt fyrir jól. Það verður voða gaman að prófa eithvað nýtt.
Gummi er enn á Íslandi og kemur aftur til Danmerkur 4. september. Hann er að byrja í Masternum, svo það eru allir að fara að gera eithvað nýtt.

Allar myndirnar mínar eru enn læstar inná harðadisknum í gömlu tölvunni minni en ég er búin að setja inn þær myndir sem voru inná myndavélinni minni, þetta eru ekkert nema djamm mynidr, en það er líka ágætt stundum :)

   |