mánudagur, júlí 03, 2006

Það er ótrúlega margt búið að gerast seinustu 2 vikurnar, ég kláraði prófin, það fór vel.

Steinunn, Daníel, Berglind, Snorri Freyr, pabbi og mamma komu í heimsókn og héldu uppá 25 ára afmæli Berglindar og útskriftina hans Gumma, útskriftarveislan fór fram á Aura þar sem við fengum 14 rétta máltíð, það var sko upplifun!!

Svo vorum á Roskilde um helgina, það var ólýsanlega gaman, það er alveg á hreinu að þetta verður endurtekið. Veðrið var líka rosalega gott.... eiginlega of gott, við vorum við sólsting!! En þetta fór allt saman vel og við komum heim í dag ofboðslega skýtug, rykug uppfyrir haus og ósofin, enda vorum við ekkert að splæsa verðmætum mínutunum í sturtu, og það var of heitt í tjöldunum til að sofa... svo núna erum við bara í algjörri afslöppun.

Við Gummi erum byrjuð að pakka fyrir Flórídaferðina sem við förum í á miðvikudaginn, ég hlakka ekkert smá til að hitta Tönju og vera í fríi með Gumma.
Svo ég blogga ekki meira í bili, við sjáumst bara á Íslandi 25. júlí.

Síja

   |