Kæru allir,
Þá erum við komin heim frá Flórída. Ferðin var algjört æði, þið fáið ferðasöguna beint í æð þegar ég kem til Íslands á þriðjudaginn kemur. En fyrir þá sem eru of spenntir til að bíða þá er ég búin að setja myndir inn (sjá fyrir neðan linkar). Ég setti líka inn myndir af öllu mögulegu sem er búið að gerast í sumar, ég set svo inn myndir af Hróaskeldu seinna.
Við Gummi stoppuðum aðeins í París á leiðinni heim frá Flórída, vorum þar í um 6 klst. og við Gummi erum staðráðin í að fara þangað aftur, fíluðum stemninguna geðveikt vel!!
Við Gummi komum semsagt til Íslands á Þriðjudaginn, ég verð í ca. mánuð og Gummi verður aðeins lengur en það, planið er að vinna og hitta fólk. Nota tíman vel því ég kem öruglega ekki til Íslands aftur fyrr en í fyrsta lagi Janúar á næsta ári!!
Við erum jafnvel að pæla í að fara til Eyja, hvernig er stemningin fyrir því, veit að Sara og Jónþór eru að fara. Eru einhverjir fleiri að fara?
Tanja segist koma ef hún fær flumiða til Íslands, svo nú er bara að leggja í púkk!!
Til hamingju Sigrún með krílið þitt, hann er algjört æði!! Ég hlakka til að sjá hann, og þig með berum augum þegar ég kem heim.
Ég vil þakka fyrir afmæliskveðjurnar sem ég fékk,
knús og kossar!!

<< Home