Þá er fyrsti dagurinn í nýrri viku liðinn, danirnir halda nefninlega að vikan byrji á mánudegi...
Sara og Hjalti voru hérna um helgina, það var æðislegt að fá þau í heimsókn!!
Ég tók mér frí frá vinnu í dag til að læra undir próf sem ég er að fara í á fimmtudaginn. Gummi átti að fara í prófið sitt kl. 13 en prófdómarinn mætti ekki, eftir mikla leit fannst hún loks, svo Gummi er orðinn Viðskipta-og Tölvunarfræðingur!.... óformlega, en útskriftin er 29. júní.
Foreldrar hans koma annað kvöld og mín familía á föstudaginn, en þangað til nýtur Gummi þess að vera í sumarfríi meðan ég læri undir próf.
Dagskráin fyrir Roskildu er komin á www.roskildefestival.dk það er nú meira ruglið, öllu hrúgað á sama tíman.
Fyrir áhugasama koma hér veðurfréttir: það er mikill hiti núna og gott veður, hefur verið í soldin tíma og það er alveg týpískt að það breitist núna þegar liðið er að koma frá Íslandi. Klikkaðu hérna til að skoða veðrið á netinu.
Adíós

<< Home