Stormurinn er genginn yfir.... allt fallið í ljúfa löð... eða eithvað í þá áttina!
Ný skólavika hófst í dag með látum... fundir hjá hópunum sem ég er í og tímar og les og læti.... en það er eins gott að fara að stilla sig inná þetta þar sem þetta róast ekkert fyrr en um 24. júní....
Þeir ákváðu að tilkynna okkur í dag að upplýsingarnar sem ég fékk um prófið sem ég var í voru rangar... við fáum ekki úr prófinu í dag heldur í seinasta lagi 3. febrúar....bömmer! En þeir skiluðu mér um leið þjóðarhagfræðiverkefninu sem ég gerði fyrir jól og þar fék ég ágætis einkunn.... svo það var ágætt. Núna er ég að fá mér að borða og lesa... ég hef í rauninni ekki frá neinu skemmtilegu að segja, þar sem allt sem ég geri þessa dagana er að lesa... nú ætla ég að lesa bók sem heitir Brancheanalyse... mjög spennandi... Ta Ta

<< Home