laugardagur, janúar 08, 2005

Það er allt að verða vitlaust!!!
Stærsti stormur síðan sautjánhundruðogsúrkál er að koma yfir okkur núna. Ég fór í ræktina áðan á hjólinu mínu (mín er búin að kaupa sér líkamsræktarkort.... loksins!) Ég varð að labba heim vegna þess að ég gat ekki hjólað, fauk bara til og frá, uppá gangstétt og útá götu... og þegar plast plata kom fjúkandi á móti mér og ég rétt slapp ákvað ég að koma mér fyrir uppá gangstétt... það komu þó móment þar sem ég var að pæla í að leggjast í götuna svo ég mundi ekki fjúka, hvílík svaðilför!! Sjónvarpstöðvarnar eru að detta út hver á eftir annarri, það er útgöngubann og allar samgöngur liggja niðri. Öll flug sem áttu að koma til Kastrup eiga að lenda í þýskalandi... baður bíður bara eftir að rafmagnið fari.... kreisí!!
En við Gummi sitjum heima í rólegheitum og borðum heitar nýbakaðar lummur.
Gummi var slappur í fyrradag, með gubbu-flensuna sem var að ganga, en hann er allur að tjaslast saman og er orðinn bara hress.
Ég er að lesa og undirbúa mig fyrir næstu viku þar sem skólinn fer af stað með látum. Ég er enn ekki búin að fá úr prófinu... en það á að koma í seinasta lagi á mánudaginn.

   |