Loksins kemmst ég í tölvuna mína!! Gummi er búinn að einoka hana undanfarna daga þar sem hann hefur verið með allskyns björgunaraðgerðir gagnvart harða disknum sínum. Hann er búinn að ná þó nokkru af disknum, skóla dóti og outlookinu, ég er sem betur fer með flest allar myndirnar okkar inná minni tölvu... hjúkk!! En það er búið að kaupa nýjan harðan disk og annan utanáliggjandi til að taka "backup". En nóg um tölvumál.
Á fimmtudaginn fór ég á kaffihús með Möggu og Heiðu, við prófuðum þvottahúsa/kaffihúsið hans Frikka. En kvöldið endaði í bullandi stelpustuði fram eftir nóttu... við vorum frekar skynsamar og fórum heim í fyrra lagi... það jafnast ekkert á við að lenda á óvæntu djammi!
Í gær fórum ég og Gummi til Malmø í jólastemmarann þar. Það er ekkert smá gaman að koma þangað yfir, allt önnur stemning! Þeir eru með mikið meira af lifandi ljósi... og svo er allt einhvernvegin miklu afslappaðra... ætli þau fari ekki bara yfir til danmerkur til að versla fyrir jólin. Við rölltum um bæjinn, þar var jólamarkaður, skautasvell og flóð af friðarkertum, mjög hátíðlegt. Gaman að geta skellt sér svona til útlanda einn eftirmiðdag!!
Í dag klukkan 3 fórum við í jólakaffi/afmæli til Hrafnhildar og Viðars, bæði Viðar og Annabella áttu afmæli um daginn svo það var verið að halda uppá það... það var boðið uppá svakalegar kræsingar og mikið fjör!!
Ég er búin að skila öllum verkefnum fyrir jólin svo núna ætla ég bara að nota hverja mínútu til að lesa fyrir prófið sem ég fer í 3. janúar, Microøkonomi og Handelsteorier.... ef það segir einhverjum eithvað :)
Maður fer nú bráðum að geta sagt: "sjáumst" en í bili ætla ég bara að segja það sama og ástkær systir mín segir stundum:
TATA

<< Home