Er I klar over hvor lang tid det tager at skrive: "spørgsmål" med Islandsk tastatur!!
Godkent/Ikke godkent það er stóra spurningin!!
Við erum búin að afhenda verkefnið hið mikla!! Þetta var orðið að algjöru sýrutrippi undir lokin... allt þótti fyndið og ekkert gekk upp, en auðvitað tókst og okkur að taka okkur saman í andlitinu og skila ágætu verkefni á seinustu stundu :) Þetta verkefni gengur bara útá að vera viðurkennt eða ekki, og ég vona að við höfum náð því. Vegna þess að við fengum aðeins 50 klst. til að gera verkefnið lítur það ekki alveg eins flott út og við hefðum viljað, en það er allavega með réttum ótreikninum.... vona ég!!
Ég er ein í kotinu núna, Gummi fór í gær til Helga, hann býr í Lyngby svo Gummi gisti þar í nótt. Það er ágætt að fá stundum smá tíma fyrir sjálfan sig, ég ætla að fara út að skokka og leggjast með gúrkur á augun og maska í andliti uppí sófa og hlusta á góða mússík. Svo hafði ég kannski hugsað mér að fara í ljós.... pæling... ég ætla allavega að dekra við sjálfa mig áður en geðveikin hefst aftur!! Ég á nefninlega eftir að skila einu verkefni í viðbót fyrir jól sem við erum ekki byrjuð á og eigum að skila á föstudaginn kemur.
Í kvöld er ég að fara í Julefrokost með stelpunum í bekknum mínum, það verður örugglega mikið fjör.
Jamm og jæja ekki mikið meira að segja.....
bæ í bili

<< Home