Afsakið óskriflegheitin!!
Hans og Heiða eru búin að vera í heimsókn í 5 daga, og það er búið að vera nóg að gera.
En á þessu kvöldi Þakkagjörða erum við Gummi að búa okkur undir ferðalag til Englands, Shefield. Uppstúfur, kartöflur og hangikjöt að malla inní eldhúsi og Gummi að hengja upp þvott og æfa sig að bera fram biscuits með enskum hreim. Ég er nú ekki enn farin að hafa áhyggjur af "niðurpökkun" enda búin að vera í allan dag í skólanum.... ég hef sjaldan lært jafn mikið á einum degi, og nú er ég orðin hálf heiladauð. Ég held samt að ég sé ágætlega sett fatalega séð þar sem ég ræðst bara á fataskápinn hennar Berglindar, frekar þægilegt að passa í fötin hennar!! Það er þó heldur verra að þurfa núna að pakka öllum fötunum fyrir jólin því ekki verður fataskápur a la Berglind til að róta í ef manni vantar outfit.
Gummi keypti sér nýja golfkylfu á e-bay og fékk hann í gær, hann labbaði með hann um allt hús í gær og þegar komið var uppí rúm var kylfan komin uppí til hans.... mín var nú ekki alveg sátt við það og tókst að telja hann á að hafa hana standandi við rúmstokinn.
Af skólanum er að frétta að verkefnið sem við skiluðum á þriðjudaginn gekk mjög vel. Við erum búin að mynda nýjan hóp fyrir næstu önn sem ég er mjög ánægð með. Framundan er ágætur slatti af verkefnum, en ég hlakka bara til að takast á við það. En fyrst ætla ég að njóta helgarinnar hjá Berglind og Erni.
Ég er nú búin að plana að það verður allt jólaskreytt hérna þegar ég kem aftur heim, það verður alveg æðislegt að fá að skreyta heimilið sitt í fyrsta sinn!! Gummi er orðinn hræddur um að þetta verði algjört jólaland hjá mér en ég þagga niður í honum með því að tala um allar smákökurnar sem ég ætla að baka.... sjáum svo hvernig það fer ;)
Já og til rest: Andri er loksins búinn að klippa sig.... það var mikið!!

<< Home