þriðjudagur, nóvember 16, 2004

GRRRR!!! helv*#%&# þetta Idol!!! ég er alveg snældu snar!!! Fituhlussan vann.... en sjáiði bara til, hún hverfur eftir þennan eina singúl sem hún gefur út. Louise á aftur á móti eftir að verða stór.... HUGE!! Erum við ekkert að grínast með þetta!!!

En nóg um það.... kíkiði á Gumma blogg hann er loksins búinn að skrifa!
Hann fór á fyrstu körfubolta æfinguna sína í gær og nú er hann stífur eins og spítukall... það koma meira að segja svona "gömlukalla hljóð" úr honum þegar hann stendur upp.... hehehe... ég hlæ bara í staðin fyrir að vorkenna honum, I´m evil...

Sunna er búin að skipuleggja gala dinner með limmósíu, fordrik og látum fyrir okkur vinkonurnar (úr Verzló). Þetta ætlum við að gera saman í staðin fyrir að gefa hvorri annarri jólagjafir!! Þetta verður haldið 30. desember því við verðum loksins allar á landinu þá.... ég hlakka ekkert smá til!!

   |