laugardagur, nóvember 20, 2004

Fyrsti snjórinn.... eða kannski öllu heldur fyrstu snjókornin eru fallin, þau voru nú ekki mörg, en snjór var það þó!!
Hans og Heiða komu hingað í kvöld, við tókum á móti þeim með "frikadiller og persille sovs" og smá "hygge" en svo sendum við þau á vit ævintýranna.....
Ég fékk þriggja sólahringa verkefni í dag. Við sátum yfir því fram að kvöldmat. Það verður nú bara að segjast að það eru svona verkefni og vinnudagar sem minna mig á hvers vegna ég valdi að fara í viðskipti..... mér finnst svona stærðfræði með teoríum á bakvið sig alveg ótrúlega skemmtileg, ég tala nú ekki um þegar maður getur tengt þetta allt og niðurstöðurnar við veruleikann. Jájá... ég er algjört nörd :/
Góða nótt, sofðu rótt

   |