Jamm og jæja.... þá er það búið... jólin, ísland, prófið og allt saman!!
Hvílíkt stress í gær... fluginu mínu mínu var frestað til klukkan 2 í nótt, ég var enn að pakka um eitt leitið þegar ég frétti það, svo Gummi hringdi útá völl og fékk sæti fyrir mig í fluginu sem átti að fara klukkan 14... svo öllu var kastað ofaní tösku og svo bara brunað útá völl... bilað stress, en sem betur fer var líka hálftíma seinkunn á 14 fluginu svo það bjargaðist, ég fékk að vera í business class og allar græjur!! Svo fór ég í prófið í morgun, ósofin og sæt.... veit ekki alveg hvernig það gekk, en markmiðið var að ná... vonanadi að það hafi gengið eftir. Svo núna er ég heima að reyna að vera dugleg og taka uppúr töskunum, þvo þvott, versla, taka til, þrífa og allt það.... það gengur bara frekar hægt hjá mér þar sem orkan er ekki til staðar. En á morgun byrja ég í skólanum af fullum kraftir... kannski maður spari orkuna aðeins þangað til um helgina...
En það var alveg æðislegt á íslandi, mér tókst að hitta flesta og gera flest sem ég ætlaði að gera. Ég hefði nú samt alveg verið til í að vera í svona mánuð í viðbót bara til að stússast, en það verður bara seinna. Veðrið hérna er samt alveg geggjað miðað við nýstingskuldan á íslandi... en það endist öruglega ekki lengi þar sem nú fer veturinn að koma hérna í danaveldinu.
Á morgun er eitt ár síðan við fluttum inní íbúðina okkar svo ætli maður setji hana ekki í sparifötin og eldi eithvað gott handa kallinum sínum, þó það sé nú erfit að standast þær háu kröfur sem hann er kominn með eftir að hafa verið í mat hjá mömmu sinni öll jólin!!
Jæja.... ég skrifa eithvað meira seinna.... blæbs

<< Home