þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Já maður kommst heilu á höldnu frá Englalandinu!!
Berglind og Örn tóku vel á móti okkur, og sýndu okkur hvernig lífið í Shefield er.... þetta var með öllu frábær ferð!! Íbúðin þeirra, nágrannar og vinir eru algjört æði!!
Þessi ferð var mikið ævintýri, við lentum í rafmagnsleysi og við keyrðum um skrýtið gatnakerfið í vinstri umferð, ég sat með hjartað í buxunum allan tíman, á tímabili var ég hætt að vita muninn á hægri og vinstri... Berglind þú ert algjör hetja að geta keyrt þarna!!!
Við fórum á djammið, það var nú meira fjörið!! Sarah (vinkona þeirra) fór með okkur á skemmtistað niður í bæ og svo fórum við í tvö partý í heimahúsi og enduðum svo heima hjá Berglind, það var mjög gaman að fá að umgangast svona "the lokals"!! Við gerðum þetta auðvitað á Enska mátan og vorum komin niður í bæ um hálf ellefu leitið, sem er víst seint að þeirra mati, en ég var bara frekar stolt af okkur!!
Þeir sem hafa áhuga á að lesa nánar um það hvað á daga okkar dreif þá er um að gera að lesa bloggið hennar Berglindar hún er búin að skrifa þetta allt niður
Berglind og Örn takk fyrir frábæra helgi!!!

   |