þriðjudagur, desember 07, 2004

Harði diskurinn hans Gumma brann yfir um daginn og enn er óvíst hvort hann geti náð einhverjum gögnum af disknum. Þetta er alveg ótrúlega svekkjandi... alveg fullt af gögnum og þá aðallega skólaverkefnum sem mikil vinna fór í, horfið! Svo nú erum við bara með eina tölvu á heimilinu, það útskýrir blogg-letina.

Það var mikið fjör um helgina... eiginlega of mikið fjör. Á föstudagskvöldið fór ég í Julefrokost með vinkonunum úr bekknum, það var eithvað það skemmtilegasta kvöld í langan tíma.
Svo á laugardagskvöldið fór ég í party til Möggu þar sem Sunna var í bænum, það var mjög mikið fjör!!
En eftir öll herlegheitin er ég orðin hálf kvefuð og með hálsbólgu, pirrandi... en ég held þetta séu bara guðirnir að segja mér að ég þurfi stundum að sofa... og ég hlusta líka á þá núna, búin að vera duglega að fara að sofa og borða holt. Maður verður að búa sig undir miklan og strangan próflestur.

Ég jólaskreytti stofuna okkar um daginn, ekkert smá kósí, dansandi jólasveinn, glitrandi jólahús og skreytt jólatré með kertum. Við erum með dagatalskerti, en jóladagatalið vantar vegna þess að happaþrennu dagatalið sem við keyptum í fyrra er bara uppselt allsstaðar sem ég fer, frekar ömó.

Við erum byrjuð á seinasta verkefninu okkar fyrir jól. Þetta er mitt leiðinlegasta fag. Dönsk þjóðarhagfræði! og í þessu verkefni erum við að analysa húsgagnabransann í danmörku... það getur vel verið að einhverjum finnist þetta spennandi en ég verð bara að segja að mér finnst þetta fag svo leiðinlegt að mér er ómögulegt að læra það, svona eins og með frönsku og sögu! en sem betur fer tekst manni að pota sér í gegnum tímana og verkefnin og gengur ágætlega. Ég er líka með góðan vin með mér í hóp sem hjálpar mér í gegnum þetta og staðin kenni ég honum stærðfræðina í hinum fögunum... frekar góður díll!!

Gummi er að fara í skólan núna, tíminn klukkan átta var felldur niður, svo ég er bara að lesa þangað til ég fer í tíma á eftir. En svo ætlum við að sitja langt fram á kvöld með verkefnið okkar.

Strætóarnir fóru í verkfall í gær morgun, vá hvað það er pirrandi, þeir fóru líka í verkfall í fyrra. Mér finnst þessi óvæntu verkföll þeirra alveg til skammar, það er í það minnsta hægt að tilkynna það kvöldið áður... hálf Kaupmannahöfn fer í kaás svona um morguninn og allir eru í vondu skapi. Ég er nú ekki enn búin að heyra hvað það er sem þeir eru að mótmæla en það er öruglega eithvað jafn fáránlegt og í fyrra. Þá fóru þeir í verkfall útaf því að þeim var svo kallt!! Þeir fengu því fram að það var sett hitamiðstöð í bílana hjá þeim þannig að það er svo heitt að maður þarf að fara úr úlpum og öllu saman ef maður ætlar ekki að líða útaf... frekar asnalegt, ég hefði gefið aumingja bílstjórunum eitt stykki dúnúlpu og húfu!!

   |