Gummi er búinn að vera "Mr. Handyman" í allan dag, þreif ofninn og sturtuna, skipti um síjur og eithvað svoleiðis.
Ég er búin að vera að læra undir prófin, er búin að vera að reikna gömul próf. Ég fer í eitt próf á mánudaginn og annað á miðvikudaginn. Svo á fimmtudaginn fer ég til Berglindar og verð með henni yfir helgina að hjálpa henni að koma sér fyrir í nýju íbúðinni sinni, svo kemur hún með mér til danmerkur miðvikudaginn 9. febrúar og svo koma mamma og pabbi 10. febrúar svo þetta verður algjör fjölskylduvika, við ætlum í leikhús og Brian sonur hennar Móu kemur frá Århús til að hitta okkur! Mikið fjör og mikið gaman!
Seinustu helgi fór ég í matarboð með bekkjarsystrunum, það var mjög gaman, en ég fór svo bara snemma heim því á laugardagskvöldið fórum við útí Lyngby til Helga Pálls í afmæli, það var brjálað fjör!!
En þessa helgi verður bara próflestur... það er líka ágætt stundum að vera bara í rólegheitum!

<< Home