Í dag er ofboðslega þunkt veður... rigning og þung ský yfir, klukkan er um 12 núna og það er enn hálfdimmt. En ég var að skoða bloggið mitt og þar skrifaði ég í byrjun mars að það var vor í lofti... svo það er nú ekki langt í vorið.... ég slepp allavega við frostinn og snjóinn!!
Núna er ég að undirbúa fyrirlestur í faginu Virksomheds beslutningsanalyse... ef það segir einhverjum eithvað, ég á að flytja hann á fimmtudaginn kemur, fyrirlesturinn fjallar um Lineær Programmering sem er stærðfræðiaðverð sem við notum til þess að finna hagkvæmasta framleiðslumagn. Ég er mjög ánægð með efnið, þar sem þetta er lítil umfjöllun og meiri kennsla í stærðfræði, það henntar mér mjög vel þar sem ég ætti að vera fær um að svara öllum spurningum varðandi það!!
En núna held ég að ég fari fram í eldhús að vaska upp... við nenntum ekki að vaska upp eftir matinn í gær... svínalundir og flottheit með þeim.... maður verður stundum að leifa sér að liggja bara á meltunni eftir svoleiðis fínerí!!

<< Home