.... Ég hef mest lítið að segja, fannst ég samt þurfa að láta vita að ég sé á lífi!!
Ég er bara búin að vera heima alla helgina að dúlla mér, lærði á föstudaginn en svo í gær meikaði ég ekki að lesa meira svo ég fann mér ástæðu til að hafa ekki tíma til þess, verslaði inn og bjó til heimalagað pestó sem ég fyllti kjúklingabringur með og bjó svo til einhvern fönkí kartöflurétt... svo bakaði ég gulrótaköku!
Ég er öll í tilraunastarfseminni þessa dagana þ.e. ég er að prófa mismunandi tíma í líkamsræktarstöðinni sem ég var að kaupa kort í .... hehehe.... ekki er öll vitleisan eins!! Ég er núna opinberlega búin að prófa allt sem hljómaði spennandi.... meira að segja Yoga... og ég endaði með að fíla einn tíma: Pilates með áherslu á maga og bak... en það verður að segjast að þegar ég var í tímanum hugsaði ég að þetta væri nú ekki alveg ég... eithvað ferlega skrítið sprikl sem meikaði ekkert sens, en dagin eftir var ég með harðsperrur í magavöðvum sem ég vissi ekki að væru til... svo ég held þessu áfram!!
Í dag ætla ég svo að reyna að lesa aðeins... en fyrst verð ég að horfa á 8. þátt OC sem ég var að fá!!
Já svona er nú lífið á Elbagötunni

<< Home