Dagurinn í dag er búinn að vera bæði góður og slæmur... en samt mest góðu!
Við verðum nú samt eiginlega að byrja á gærdeginum.... eða eiginlega kvöldinu, við fórum nefninlega á kínverska veitingastaðinn hérna neðar í götunni í fyrsta sinn í gær... og vitiði hvað!!! við fengum stóra dollu af ekta kokteilsósu með kartöflunum sem Gummi fékk sér!!! Ótrúleg hvað litlir hlutir geta glatt mann svakalega mikið!
Í dag flutti ég svo fyrirlesturinn hinn mikla og það gekk mjög vel :)
En eftir tíman sagði Pia mér að hún ætlaði að hætta í náminu frá og með deginum í dag... mér finnst það ofboðslega leiðinlegt þar sem við náðum svo vel saman. Svo núna erum við bara fjögur eftir í hópnum mínum :(
En á föstudaginn er svo matarboð heima hjá Kristine, einni úr þessum skóla-stelpu-vinahópi og það verður öruglega brjálað fjör... En Kristine tilkynnti okkur í seinustu viku að hún ætlar að hætta í náminum.... svo að þegar Kristine og Pia verða báðar farnar þá eru útlendingarnir í vinahópnum orðnir jafn margir og Danirnir (við skörtum nefninlega tveim norskum).
Á laugardaginn förum við svo uppí Lyngby í afmæli til Helga Páls... það leikur enginn vafi á því að það verður allt vitlaust þar!!
Þangað til seinna.... adíós

<< Home