miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Komin aftur til Rennes!!
Rosalega var gott að koma til Köben, pabbi kom og hitti mig og svo komu Stína og Óli líka í heimsókn og við tókum bílaleigubíl og skoðuðum hallir og fleira, það var ekkert smá gaman, loksins gat maður gefið sér smá tíma með Stínu og Óla.
Það er erfit að vera kominn aftur til Rennes, en ég er að venjast, drekki mér bara í vinnu, hef 3 verkefni sem ég þarf að vinna og skila á næstu 2 vikum, svo það er bara stuð. Búið að bjóða manni í 3 partý um helgina... sjáum til hvernig það fer :)
Eftir 3 vikur eða 26. nóv fer ég svo aftur til Köben til að hitta Mömmu og Eddu sem koma til að fá jólin beint í æð. Þegar ég fer svo aftur til Rennes 3. dec á ég bara tæpar 2 vikur í prófum og svo á ég flug heim 15. dec... þá hætti ég þessu veseni og verð í Danmörku :)
Svo það er ekki langt eftir að tímanum mínum hérna í Fraklandi og ég held svei mér þá að ég hafi grætt mjög mikið á þessu, fyrir það fyrsta þá skil ég mikið í frönsku núna og enskan mín er orðin tipp topp, ég komst að því að grasið er EKKI grænna hinum megin og ég get alveg hugsað mér að búa lengur í DK. Ég er búin að læra ótrúlega mikið í hinum ýmsu hliðum markaðsfræðinnar og búin að sjá að það er svið sem ég get hugsað mér að fara meira inná. Ég komst líka að því að það á betur við mig að hafa mikið fyrir stafni en lítið, ég hreinlega virka ekki þegar ég of mikinn tíma fyrir sjálfa mig.... sorglegt en satt.
Jæja nóg komið af heimsspeki.
Luvjú
Ingibjörg

   |