þriðjudagur, október 24, 2006

Hóm Svít Hóm!!!
Ég er komin aftur í siðmenninguna. Mikið er gott að koma heim til Kaupmannhafnar. Maður fattar bara ekki hvað maður hefur það gott heima hjá sér fyrr en maður fer í burtu. Ég verð hérna þangað til 5. nóv, þá er haustfríið mitt búið.
Við Gummi vorum í Rennes frá þriðjudegi til fimmtudags í seinustu viku, við skoðuðum bæinn, skólann, næturlídið og Mont St. Michell. Á fimmtudagskvöldið fórum við svo til Parísar þar sem við fengum að vera í íbúðinni hans Brynjars, þar sem hann var í burtu með Rakel. Við náðum að sjá ótrúlega margt, og nutum þess alveg í botn, á sunnudaginn komu svo Brynjar og Rakel og við vorum með þeim fram á mánudag.
Ég er búin að setja inn eithvað af myndunum, kíkiði endilega (nýjast er efst).

   |