Gaman Gaman!!
Gummi kemur í kvöld!! Hann ætlar að heimsækja mig hérna í Rennes og svo förum við saman til Parísar yfir helgina. Og svo er ég í haustfríi svo ég fer til Köben þangað til 5. nóv.
Ég ætla bara að nota daginn í dag til að afla upplýsinga um ferðir sem við getum farið í hérna. Mér langar að fara til St. Michel kastalann, og svo þarf Gummi auðvitað að hitta alla vini mína hérna!! Í parís njótum við svo bara lífsins ekkert stress, bara rjómó!!
Það verður gott að komast aftur til Köben í raunveruleikann, mér líður eins og ég sé í leiklandi hérna í frakklandi, það er eingin pressa og ekkert vesen, og ég verð bara að segja að ég sakna þess soldið að hafa eithvað fyrir stafni.
Ég fékk bréf frá skólanum mínum sem segir að ég sé með allar þær einingar sem ég þarf til að dekka það sem ég ætti að vera að gera í DK svo náminu seinkar ekki, ég þarf bara að taka 1 auka fag á næstu önn.
Nýja herbergið mitt er rosa kósí, nema að ég hef ekki hugmynd um hvernig á að fá internet, og ENGINN talar ensku þarna, en ég fann eina stelpu frá Huston í gær, hún talar ensku en hún er líka nýflutt inn. Vonandi að ég geti fundið útúr því fljótlega, ég fæ innilokunnarkend þegar ég er ekki með internet.
Ég er enn að bíða eftir próftöflunni minni... bíð spennt að sjá hvenær ég get farið aftur til DK. Ég hef voðalega litlar áhyggjur af prófunum mínum, kennararnir eru að gefa okkur spurningarnar og svörin í tímum.... það er nú ekki alveg í lagi, þeirra rök eru að við hlustum hvorteðer ekki!!!
Jæja, ég ætla að fara að gera eithvað í viti!!

<< Home