miðvikudagur, september 13, 2006

Jæjæ jæja, ég held ég hafi sjaldan verið svona dugleg að blogga, en ég verð bara að nýta tækifærið hvert skipti sem ég fer á netið... ég hef semsagt ekkert merkilegt að segja.

Er búin að vera í tímum þessa vikuna og líst bara vel á. Ég var veik í gær og er búin að ákveða að það má ekki gerast aftur, ég held mér hafi sjaldan leiðst jafn mikið!!!

Við Petra ætlum að fara í dag og reyna að fá okkur internet og heimasíma, en ég held að sá prósess eigi eftir að taka 2 vikur.

Berglind var að senda mér grein um að Hollendingar eru að finna upp bóluefni við matarofnæmi!!! Það á að koma á markað innan 10 ára!!! HELLL YEEAAA!


Ég er farin að sakna allra mjög mikið, held að þetta sé svona þrep sem ég þarf að komast yfir. En ég verð bara að finna mér hluti til að gera til að að hafa ekki tíma til að hugsa um það. Er að fara í bíó með nokkrum skiptinemum í kvöld, held að það séu ein Sænsk, Þýsk, Norsk og Finnsk... SkandinavíuLið.

Ég var víst í sjónvarpinu í Danmörku í gær á TV3, Fantastiske Fem komu nefninlega í heimsókn í búðina í Júní, og í gær uppskárum við frægð og frama :) Gummi tók það upp, ég get ekki beðið eftir að sjá það, þó ég viti að það er óþolandi að horfa á sjálfan sig í sjónvarpinu.

Ég er búin að setja inn tvö ný mynda albúm... njótið vel :)

Íslendingar eru æðislegir, slá alltaf öll met þegar þeir taka sig saman..... GO MAGNI!!

   |