mánudagur, september 11, 2006

Ég er komin heim úr Survival Camp, allt innifalið í verðinu... mæ as!! Við fengum ekki mat og ekki drykk svo við vorum farin að týna ber af trjánum, við vorum látin sofa í tjöldum/plast húsum. Það góða var að það var nóg af sól og strönd, og fullt af skemmtilegum skiptinemum.
Fyrsta kvöldið fór ég á spítalan vegna Moskítóofnæmisviðbragða (það er í lagi með mig núna), svo ég mátti ekki fara á ströndina dagin eftir, svo ég sat ein við sundlaugina með öllum heimsku frökkunum!!
Við fengum ekki að vita það fyrr en of seint að við yrðum með 1. og 2. árs nemendum héðan út skólanum, sem var frekar ömurlegt, og við skiptinemarnir enduðum á að kveikja bál niðrá strönd og halda okkar eigið partý, ég endaði með að fara þangað með plastpoka utanum veiku löppina.
Frá Fimmtudegi til Sunnudags fór ég semsagt á ströndina suður af Bordeaux, en við fengum ekki tækifæri á að sjá borgina, ég hef eytt 20 tímum í þröngri rútu, 10 tímum í svefn, 5 tímum á spítala, 20 tímum í að bíða, og restinni í að hafa gaman. Þetta er semsagt búin að vera einhver sú verst skipulagða ferð sem ég hef farið í.
Ég hef þó grætt á þessari ferð að ég veit að ég ætla ekki í Parísarferðina sem sama fólk er að skipuleggja fyrir okkur. Ég er búin að sætta mig við að ég er hér til að kynnast menningu Frakkana en ekki til að elska hana. Frekja, dónaskapur og yfirgangur hefur komist uppá nýtt level og Íslendingar eru ekki lengur vinningshafarnir.
Ég er að hugsa um að skella mér til Parísar yfir 1 nótt, þarnæstu helg eða þar þar næstu helgi, er einhver í stuði til að skella sér með?
Ég er búin að vera í tímum í dag og mér líst bara vel á þetta allt saman.

Still lovin it!!

   |