London Baby!!! Það var æðislegt að fara til Sheffield og heimsækja Berglind og æfa "Sincronised Sleeping" í litla rúminu hennar, fara út og hitta alla í einu, Joe og Carrie, Söru, Natalie, Emmu og Rob, borða skrýtnasta mat sem hugsas getur... kebab án brauðs og kjúklingaborgara án álegs og að fara svo með henni til London að hitta Mæju og Sunnu og Badda, og prófa bæði fancy djamm og stúdentadjamm og að sjá borgina margumtöluðu, það var æðislegt að hitta Sunnu og Badda, loksins hef ég komið til London!! Berglind segir mikið frá ævintýrum okkar á sínu bloggi svo ég ætla ekkert að vera að endurtaka það hérna.
Núna loksins er nóg að gera í skólanum, við erum að fara að kynna verkefnið okkar á föstudaginn og allt er sett á fullt, en ég finn mér samt tíma til að vera lög og til að hanga með vinum mínum.
Það eru komnar inn myndir í 3 neðstu albúmin, ég bætti fleiri myndum í "fjör í rennes og intergration weekend" albúmið og svo eru tvö ný, Vannes og London.... enjoy
Ég læt heyra í mér fljótlega ef ég hef frá einhverju að segja.
knúsírúsí

<< Home