þriðjudagur, september 19, 2006

Allt gengur sinn vanagang, daglegt líf er byrjað að fá "rútínu" og ég er farin að njóta þess að hafa ekkert að gera nema rækta nýjan vinskap og fara í skólann. Þessi skóli er svo lítill, held það séu um 1.000 manns í honum, svo ég er komin með smá Verzló fíling, get ekki labbað um gangana eða farið í kaffiteríuna án þess að þekkja einhvern.

Frönsku vinkonurnar sem ég var að vinna hópavinnu með í morgun brá þegar ég var farin að heilsa öðrum hverjum með nafni, en það er náttúrulega því ég þekki flesta 170 skiptinemana. Ég held líka að þær hafi fengið smá kúltúrsjokk þegar ég skammaði þær fyrir að koma 30 mín. of seint svo var ég búin að skipuleggja fundinn og setja niður dagskrá og markmið.... þær höfðu aldrei séð annað eins skipulag, ég var samt mest hissa þegar ég komst að því að þær höfðu aldrei sett inn heimildir (footnote), í flestum löndum ertu rekin úr skólanum fyrir að setja ekki heimildir á það sem þú tekur af netinu eða úr bók, en ég þurfti að kenna þeim þetta alveg frá byrjun!!!

Ég veit ekki hvað það er enn kennararnir mínir virðast flestir hafa tekið ástfóstri við mig, sem er mjög skrýtið þar sem maður er vanur að týnast í fjöldanum þegar maður er kominn í háskóla, en ég var í frönsku og franskri menningu í gær og báðir kennararnir tóku mig fyrir, ég veit ekki hvort það er vegna þess að ég er sú eina sem er að fylgjast með í tímum.... það er fáránlegt, það er skvaldur allan tíman meðan kennarinn talar!!! Ætli þeim finnist ég ekki vera proffinn frá Íslandi :/

Annars er ég að fara í afmælisveislu á morgun og á laugardaginn og á fimmtudaginn er International Student day, þar sem við fáum guided tour um borgina þar sem okkur verður sögð öll sagan. Borgarstjórinn býður okkur svo í koktailboð í flottasta veislusalnum sem borgin á. Eftir það er okkur boðið á tónleika en ég er enn að velja hvort ég ætli á tónleikana eða stelpukvöldið sem skólinn er að halda fyrir okkur. Ég hef semsagt nóg að gera í félagslífinu, eins og ég sagði áðan soldið flashback til Verzló áranna, sem er alls ekki slæmt :)

Til gamans má geta að við höfum í allt sumar skemmt okkur afskaplega vel yfir vinsælasta lagi Indverja klikkaðu hér til að skoða það. Ég var að ræða þetta mál við tvær stúlkur sem eru af Indverskum uppruna og þekkja menninguna svolítið, þær báðu mig að lýsa myndbandinu þar sem ég hafði ekki hugmynd um hvað lagið héti, ég sagði þeim eins og var að þetta væri mjög langt lag þar sem stúlka og ungur maður væru að hlaupa um í náttúrunni með alla dansarana sína með sér, og þau sögðu að ég hafi lýst um það bil öllum tónlistarmyndböndum sem þær höfðu séð frá Indlandi, svo þar höfum við það staðfest, þetta þykir aðal kúlið á Indlandi :)

Mér langar að óska Sigrún Huld til hamingju með skýrnina og nýja nafnið, Tómas Ían Brendansson er mjög fallegt nafn!!

Takk fyrir kveðjurnar á kommenta kerfinu, mér finnst rosa gaman að fá svona nokkur orð.

   |