Um helgina fór ég í heimsókn til Vannes, sögulegur bær innan virkismúra, mjög krúttlegt.
Svo fór ég í afmælisveislu á laugardagskvöldið, það er alltaf jafn gaman að fara útá lífið með fólki frá svona mismunandi löndum...
Stóru fréttirnar eru þó að ég er búin að kaupa ferð til Berglindar, þannig að á Miðvikudaginn fer ég til Sheffield og ca. á Föstudaginn ætlum við svo til London og svo fer ég heim á Sunnudaginn. Og þá eru bara 2 vikur og 2 seminar eftir þangað til Gummi kemur, það er eins gott að ég hafi um nóg annað að hugsa því ég sakna hans svo mikið að ég er að bilast... hvað er það að geta ekki verið í sundur í smá tíma án þess að klikkast, hvar er sjálfstæðið?!!
Ég hlakka alveg rosalega til að fara til Parísar með honum, mér hefur alltaf langað að sjá París!! Svo var London líka á listanum yfir staði sem mér langaði að sjá, þá á ég bara Róm eftir.... London, París, Róm.... þið vitið....
Jæja nú ætla ég að fara í sturtu og gera mig sæta og hoppa svo niðrí skóla, það er nóg að gera.

<< Home