föstudagur, september 15, 2006

Ég er alveg búin á því, er á Seminar í Marketing Communication sem þýðir að ég er allan daginn í skólanum í gær, í dag og á morgun á Laugardegi!!! og mitt í þessu öllu þurfti fyrsta partý ársins auðvitað að lenda, en það er bara gott og blessað, ég sef bara þegar ég er dauð!!

Næstu tvær vikurnar á ég semsagt að vinna hópverkefni um eitt fyrirtæki í Olíu bransanum, ég á að skoða hvernig það háttar sýnum samskiptum við markaðinn og gagnrýna og jafnvel koma með tillögur um betrumbætur. Þetta er fag sem ég er að fíla í botn, það er af Master braut, ótrúlegt hvað er mikill munur að vera í Master fögum eða Bechelor fögum.
Ég er semsagt komin í hóp með 3 frönskum stelpum sem eru alveg æðislegar. Það var slegist um okkur 5 skiptinemana þegar átti að skipta í hópa því allir vildu æfa sig á ensku og hafa erlent sjónarmið með í umræðunni.

Mamma og Berglind tóku sig heldur betur vel út í Vikunni!! Ég er búin að lesa blaðið fram og til baka eftir að ég endurheimti það uppúr ruslatunnuni, þar sem herbergisfélagi minn var búin að opna póstinn minn og henda honum í ruslið.... ræðum það ekkert frekar!!!
Annars gengur sambúðin vel, þrátt fyrir nokkra örðuleika. Ég er að tala við skólan um að laga það sem lagað verður en annrs er ég bara búin að sætta mig við vissa hluti, þýðir ekki að vera stanslaust að kvarta :)

Ég er hálfpartinn komin með netið heima hjá mér, þar sem það fór allt í einu að virka, en við ætlum nú samt að kaupa okkar eigið. Ég get kemst ekki inná MSN, en ég er á Skype, ég heiti ingsno.
Síja ;)

   |