Jæja, þetta er met þessa önnina, tvö blogg á sama degi!!!
Ég hef ákveðið að leita hjálpar ykkar þarna úti, þannig eru nefninlega mál með vexti gsm síminn minn er Stónded On The Flor, kominn með sinn eiginn vilja, skellir á fólk sem hringir í mig eða bara sleppir því alveg að hringja, og drepur svo á sér í tíma og ótíma, og sérgrein herre Ericssons er að ljúga til um það hversu mikið batterí er eftir... semsagt vonlaust dæmi og ég ætti að vera búin að skipta um síma fyrir löngu.
Ég lofaði Gumma að ég mundi fá mér nýjan síma um jólin, svo nú er að duga eða drepast.... ég verð að finna mér nýjan síma!!! Ég er búin að gera dauðaleit að hinum fullkomna síma en hef ekki fundið hann enn. Er samt eiginlega búin að ákveða að velja á milli tveggja:
Sony Ericsson Z530i eins og Berglind á, því hann er ódýr og hefur þær fúnksjónir sem ég þarf. (svo þegar fullkomni síminn kemur á markaðinn skipti ég yfir í hann).
Eða Motorolla PEBL U6 sem er mjög flottur en er með helmingin lélegra batterí og kostar mun meira.... en er frekar kúl... en ég hef heyrt hrillingssögur eins og að það þarf að ýta 12 sinnum á takka til að komast inní að senda skilaboð, er það sat!!!
Þetta er svo erfit... hef aldrei átt við svona hardkor valkvíða að stríða!!!
HJÁÁÁÁLLLLPPPP

<< Home