mánudagur, nóvember 20, 2006

Jæja, þá er seinasta vikan í kennslu runnin upp og nóg að gera. Þessi vika verður fullpökkuð af skólaverkefnum og hópafundum, en það er gott að hafa nóg að gera svo tíminn líði, því á Sunnudaginn er ég að fara til Kaupmannahafnar, verð í heila viku!!
Þessa helgi slettum við heldur betur úr klaufunum, það voru tónleikar á miðvikudegi, partý á föstudegi og svo fórum við á skauta á laugardagskvöldi, 30 skiptinemar saman, það voru diskóljós og mússík og klikkuð stemmning, nú er ég komin með æði fyrir skautum og á eftir að draga Gumma með mér á Kongens Nytorv til að skauta .... sjáum til hvernig það á eftir að ganga :)
Ég setti inn nokkrar myndir af viðburðum helgarinnar.
Jæja farin að lesa mér til um Pricing strategies.... spennó...
Luv
Ingí

   |