fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Internet er mikil lúxusvara hér í frakkalandi, og ef þú ert svo heppin að það virkar þá er ekki sjálfgefið að það sé hraðvirkt eða að þú getir opnað msn eða að það virki í meira en 2 mínútur. Svo hver mínúta á internetinu er dýrmæt og ég er búin að læara að vera súper effektív þegar ég vinn á netinu..... ég fæ innilokunarkend....

Allavega til að losa um innilokunakendina sem ég fæ þegar ég kemmst ekki á netið og síminn minn er inneignarlaus fór ég á tónleika í gærkvöld, á We are scientists, Brilliant tónleikar með skemmtilegu fólki, og fjörið endaði með því að við fórum út með hljómsveitinni, sýndum þeim bæjinn og vorum í brjáluðu stuði til klukkan 4 í nótt!!! Besta kvöldið í Rennes so far.
Jæja nú er tölvan mín næstum batteríslaus, svo ég verð að þjóta....
Knúsírúsítúsí

   |