Þá er ég orðin stoltur verslunarrekandi við Strikið!!
Og ég held barasta að hálsbólgan sé að lagast!!
Við byrjuðum á fimmtudaginn með að taka við plássinu, fengum vörurnar um 16 settum búðina upp með hjálp frá Ingu Rós og Gulla og vorum búin um klukkan 23.... mættum svo daginn eftir og opnuðum!! Við höfum ekki enn mætt neinum mótbyr og vonum til að það sé góðs viti. Fólkið tekur rosalega vel í vöruna og stílinn svo við erum bara vongóð!!
Þetta er algjört ævintýri og algjör draumur í dós.... þið verðið að lofa að kíkja á mig ef þið komið til Køben, búðin liggur á Skoubogade 1, 1158 København K
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir af fjörinu, kíkiði endilega á það!
knús
Ingibjörg Búðarkona

<< Home