þriðjudagur, maí 31, 2005

Seinustu helgi var bilað gott veður. Enda tókst okkur pabba að fá smá lit í kroppinn eftir ágætis strandarferð. Já pabbi var hérna seinustu helgi, við tókum á því og skelltum saman bisniss... eða svo að segja. Stóra fréttin er allavega að ég kem ekki til Íslands í sumar, allavega ekki nema þá kannski eina helgi eða svo. Verð að vinna í nýrri verslun við strikið sem við opnum 1. júlí ;)
Núna er ég stödd úti á landi, nánara tiltekið á bóndabæ í Ringested. Einn strákurinn í vinnuhópnum mínum býr hérna og við verðum hér og gistum fram á föstudag. Þetta er mjög þægilegt þar sem við erum að vinna lokaverkefni. Erum með heila hæð fyrir okkur og mamma hans eldar ofaní okkur... alveg ekta!!
En þetta var nóg skrif í bili... fylli aftur á þetta bloggerí næstu helgi.
knúz
Íngípingí

   |