Í kvöld kláraði ég lögfræðinámskeiðið sem ég var á, það var búið frekar seint, eða um 21 leitið og ég dreif mig eins og ég gat til að komast heim, aðalega af tveimur ástæðum; því Gummi var búin í prófi og ég var spennt að heyra hvernig hafði gengið og því ég ætlaði að hringja heim í Jöklafold og heyra í Berglind sem er nýkomin heim!! Þegar ég kom út var svo búið að rigna á hjólið mitt, en ég þurkaði af sætinu og hjólaði af stað... nema hvað, lætin voru þvílík að mér tókst að renna á pedalanum vegna bleytu og þar sem skórinn var aðeins of stór þá rann hann af og varð eftir á miðjum stór-gatnamótum!! mér leið eins og Lottu í bókinni Víst kann Lotta að hjóla!! tiplaði á sokkaleistanum útá mið gatnamót til að ná í skóinn minn. Mér fannst þetta bráðsmellið og mjög klaufalegt svo ég hlóg en fólkið í bílunum og strætóskýlinu horfði á mig eins og ég hefði slasað mig.... hehehehe... ég flýtti mér hægt eftir þetta og komst heim heilu á höldnu en þó með blautan sokk!! Jájá, svona er þetta, manni tekst alltaf að gera sig að fífli inná milli. En svo kom ég heim og Gumma hafði gengið vel í prófinu svo hann var búinn að elda kjúkling og hrísgrjón í súrsætri sósu....mmmmm og Berglind var í góðum fíling á Íslandi, var á leiðinni að kíkja á Lovísu og bumbuna hennar!!
Vegna anna tókst mér ekki að kveðja hana Möggu mína sem fór heim til Íslands í kvöld, þess vegna langar mér hérmeð að óska henni góðs sumars á Íslandi!!
Þetta ætti að vera nóg í bili.... jú eitt enn, ég lýsi hérmeð eftir ungri stúlku, hún sást seinast veltilhöfð og í banastuði í grillveislu á øresunds kollegi, stúlkan heitir Heiða og er að verða 24 ára, hún er grunuð um að hafa stungið af með ferðatösku og sólgleraugu ef til vill til Svíþjóðar. Ábendingar berist til Ingibjargar í síma 27510123..... djók... bara langt síðan ég hef heyrt í þér skvís!!
Nóg bull í bili....
sumarkveðjur úr ósumarlegu veðri!!

<< Home