föstudagur, júní 17, 2005

Hæ hó jibbí jei og jibí jei það er kominn sautjándi júni!!!
Jamm og við erum með veður í stíl, þ.e. rigning en þó er 17 stiga hiti. En það er ágætt að væta landið fyrir sumarblíðuna sem kemur þessa helgi... á að vera alveg klikkað gott, pæling hvort maður skelli sér með Heiðu og Ásu á Zulu rocks sem eru tónleikar haldnir frá kl. 14-00 og þar eiga að koma fram Snoop dog, Avril lavigne og margar mikið betri danskar hljómsveitir þetta verður á laugardagin, og svo á sunnudaginn á að vera 27 stig og alvöru sumar svo þá verður farið í strandarferð óttans. Svo er bara að halda áfram að læra læra!!

   |