miðvikudagur, júní 29, 2005

Það er orðið soldið langt síðan ég skrifaði síðast, en eins og alltaf þá hef ég afsökun... það er búið að vera vitlaust að gera :)
Ég kláraði seinasta prófið mitt 23. júní á afmælinu hennar Berglindar, stóð mig vel og er bara sátt við þennan vetur. Sama kvöld fór ég til Íslands í vinnuferð, ég notaði þó tækifærið og fór út á lífið með Berglind, Mæju og Lindu til að fagna afmæli Berglindar. Síðan hef ég notað allan lausan tíma til að vinna í að smella öllum smáatriðum saman svo hægt verði að opna búðina frægu!! Það gengur allt saman vel og nóg er að gera, mér tókst þó að veikjast í nótt og er búin að vera að hlaupa um bæinn með hita í 24 stiga hita.... komst heim heilu á höldnu en held ég sleppi því að skúra, er búin að fá mína leikfimi í dag. Verkjalyfin halda mér gangandi en ég held ég ætli bara að leggja mig núna og reyna að ná þessu úr mér. Pabbi og Lilja (Verslunarstýra Jens) eru að koma í kvöld og við tökum við búðinni á morgun, ætlum svo að reyna að opna á föstudaginn!!
Gaman gaman!!

   |