föstudagur, maí 20, 2005

Þá er kominn tími til að láta heyra í sér, ég er sossum ekkert búin að vera gera neitt mikið undanfarna daga, ég er búin að blaða aðeins í skruddunum en ég á við mjög alvarlegan einbeitingarskort að stríða!! Enda líður mér ekki eins og þessi próf séu á næsta leiti... Danirnir taka þessu svo rólega, að maður fær einhvern vegin ekki pressu sem er nauðsynleg til að halda manni við efnið. En þetta reddast allt!
Hildigunnur kemur til Danaveldis í næstu viku, svo það verður eithvað húllumhæ þá. Heiða skilar líka BS ritgerðinni sinni í næstu viku svo það verða allir í fullu fjöri.
Það er stefnan að halda Eurovision partý á laugardaginn, en það er búið að skemma fyrir manni stemmarann með því að hleypa henni Selmu ekkert áfram, en við látum það ekkert stoppa okkur, ég er allavega búin að ákveða að halda með Swiss og í annað sætið Noregur.... En það á pottþétt ekki eftir að gerast þar sem þetta er orðið svo pólitískt!!
Gummi skilaði verkefninu sínu í gær, þegar hann kom heim var hann búinn að vaka í 30 tíma og ekkert búinn að vera heima hjá sér! En ég er himinlifandi að vera búin að endurheimta hann. Heiða kom svo til okkar í gær og við vorum með smá nammi og snakk partý á meðan við horfðum á Eoruvision. Það var mjög huggulegt.
Í kvöld ætlar Gummi að bjóða mér út að borða. Svo er nóg að gera um helgina, við ætlum að reyna að fara í Ikea og svo er afmæliskaffi hjá Andra á sunnudaginn. Og svo þarf maður auðvitað að læra aðeins, sérstaklega ef maður ætlar að hafa tíma fyrir hana Hildigunni okkar ;)
Jæja þetta er komið gott í bili
síjaleiteralígeiter

   |